
Sjókvíaeldisiðnaðurinn sækir einfaldlega hagnað úr ósnortnum hafsvæðum Íslands á hraða sem náttúran hefur ekki efni á.
Laxeldisstöðvar setja allt að 200.000 Atlantshafsgönguseiði, sem ræktuð eru á rannsóknarstofum, í sjókvíar sínar. Seiðin eru ræktuð markvisst til að verða feitari og ná hraðar kynþroska en villtir ættingjar þeirra.
Yfirfullar eldisstöðvar spilla vistkerfum sjávar og ferskvatns á margan hátt: Laxalúsin sem herjar á sjókvíarnar étur laxinn lifandi og skaðar villt lífríki og fisk í nágrenninu. Sýklalyf og skordýraeitur sem notuð eru í sjókvíum eru einnig banvæn öðru sjávarlífi. Einnig mengar óhreinsaður úrgangur frá laxeldisstöðvunum hafsvæðin í kring.
Milljónir eldislaxa í sjókvíum drepast ótímabært á hverju ári. Nýleg rannsókn sýndi að 865 milljónir þeirra drápust í fjöldadauðatilfellum síðasta áratuginn.
Villtir Atlantshafslaxastofnar hafa hrunið í öllum löndum þar sem laxeldi er stundað. Af þeim sökum hafa ríkin Alaska, Washington og Kalifornía í Bandaríkjunum, sem og Argentína, bannað sjókvíaeldi, með vísan til afgerandi sannana um að það sé ósjálfbært og skaðlegt villtum dýrastofnum, vistkerfum og efnahag um allan heim.
Íslenskir ráðamenn: Leyfið ekki spilltum iðnaði að menga það sem okkur er kært. Til að ávinna ykkur stuðning þjóðarinnar, takið afstöðu gegn sjókvíaeldi. Saman getum við bundið enda á þessa eitruðu iðju í sjónum okkar.

Íslenskir leiðtogar: Ekki láta spilltan iðnað menga það sem er okkur dýrmætast. Takið afstöðu gegn opnu sjókvíaeldi til að afla ykkur stuðnings almennings í landinu. Saman getum við bundið enda á þetta skaðlega athæfi í fjörðunum okkar.