

Forystufólk í íslensku þjóðlífi er á móti opnu sjókvíaeldi. Þetta opna bréf sem birtist þann 4. apríl 2024 var undirritað af 18 forystuaðilum í viðskiptalífinu og landeigendum.

Sjálfsmynd Íslands verður ekki aðskilin frá legu þess og náttúruauðlindum.
Ísland samtímans er þjóð sjálfstæðs fólks sem trúir á sjálfsákvörðunarrétt.
Við hvetjum heiminn til að heimsækja, njóta og fjárfesta á ábyrgan hátt í stórfenglegu landi okkar, en ekki til að taka af því.
Sjálfbærni verður að vera hornsteinninn í öllu sem við gerum.
Landið okkar á skilið langtímahugsun- og áætlanagerð.

Forsvarsfólk atvinnulífsins á Íslandi leggst gegn sjókvíaeldi. Opið bréf, sem birt var 4. apríl og 2. maí 2024, hefur verið undirritað af meira en 97 stjórnendum í atvinnulífinu
Lagareldisfrumvarp þessa árs mun setja reglur um sjókvíaeldi sem brýtur gegn öllum þeim grundvallarreglum sem taldar eru upp hér að ofan. Eldisstöðvarnar eru að meirihluta í eigu norskra fyrirtækja sem greiða lágmarksskatta en hafa hámarksáhrif á náttúruauðlindir okkar og fullveldi. Sjókvíaeldi er ósjálfbært, eitrað fyrir umhverfið og útrýmir villtum fiskistofnum. Við skorum á löggjafa okkar og ráðherra að setja sólarlagsákvæði á opið sjókvíaeldi héðan í frá.



